Vatnsvika UNICEF 4.-13. apríl
Hreint drykkjarvatn er munaður sem við tökum flest sem sjálfsögðum hlut. Staðreyndin er hins vegar sú að á hverjum degi neyðist yfir milljarður jarðarbúa til að svala þorsta sínum með óhreinu vatni. Daglega deyja þúsundir barna af þessum orsökum og mun fleiri veikjast alvarlega.
UNICEF á Íslandi hefur helgað dagana 4.-13. apríl vatni. Samtökin standa þá fyrir fjársöfnun og mun söfnunarféð renna til vatnsverkefna UNICEF um allan heim. Samtökin vinna að því í yfir 90 löndum að auka aðgang barna að vatni enda skiptir hreint vatn sköpum fyrir lífsviðurværi barna sem búa við bág kjör.
Stuðingur þinn skiptir máli!
http://www.unicef.is/vatnsvika