Einstakur fyrirlesari
Þann 2. febrúar næstkomandi mun hinn heimskunni fyrirlesari Jack Canfield halda dagsnámskeið um Lögmál velgengninnar í Háskólabíói.
Jack er einn allra besti og eftirsóttasti árangurs og leiðtogaþjálfari heims í dag og í hópi vinsælustu fyrirlesara Bandaríkjanna ásamt mönnum eins og Bill Clinton, Lance Armstrong og Anthony Robbins.
Jack er með BA masters gráðu í sálfræði frá Harvard og hefur þjálfað athafnamenn og stjórnendur í meira en þrjátíu ár með frábærum árangri.
Hann er stofnandi og stjórnarformaður Canfield Training Group í Santa
Barbara í Kaliforníu. Fyrirtæki það þjálfar athafnamenn, kennara,
forstjóra fyrirtækja og aðra áhugasama einstaklinga, sem ná vilja
persónulegum og starfstengdum markmiðum sínum á stuttum tíma.
Íslendingar þekkja Canfield ekki síst af þátttöku hans í hinni geysivinsælu kvikmynd “The Secret” og aðkomu hans að samnefndri bók. Bókin sem var ein mest selda bókin á Íslandi á síðasta ári og hefur selst í yfir 15.000 eintökum og er enn að seljast. Myndin hefur verið mjög vinsæl selst feikivel.
Hann er annar höfunda „Chicken Soup for the Soul” bókanna, og maðurinn á bak við samnefnt viðskiptaveldi, sem Time Magazine kallaði „Útgáfuundur áratugarins” og er því einstaklega hæfur til þess að fjalla um velgengni.
Jack hefur skýra framsetningu og einstaka hæfileika til að ná til áheyrenda sinna í öllum þjóðfélagsstigum, hvetja þá áfram og hjálpa þeim að ná markmiðum sínum.
Jack er fæddur í Texas og kemur frá lág-mmiðstéttarfjölskyldu sem var á sífeldum ferðalögum fyrstu árin þar sem faðir hans var í hernum. Faðir hans var ofbeldisfullur og skyldu foreldrar hans þegar hann var 6 ára. Móðir hans var alkóhólisti og giftist öðrum manni skömmu eftir skylnaðin. Eftir það ólst Jack að mestu upp í virginiu fylki. Þannig að það má segja að hann hafi ekki fæðst með silfurskeið í munni heldur hefur unnið fyrir þeir árangri sem hann hefur náð og er því einstaklega hæfur til þess að fjalla um velgengni.
Þess má geta að Canfield er í heimsmetabók Guinness fyrir að hafa átt sjö bækur á sama tíma á metsölulista New York Times. Stephen King kemur næstur með sex bækur.
Canfield ritar fasta pistla, sem birtast reglulega í 150 dagblöðum um allan heim. Einnig ritar hann greinar um einstök málefni og er vinsæll viðmælandi og fréttamatur í fjölmiðlum. Hann hefur komið fram í yfir 1.000 sjónvarps- og útvarpsþáttum, m.a. hjá Oprah og Larry King.
Megin þemað í umfjöllun Jacks þann 2. febrúar eru lögmál velgengninar sem byggt er á bók hans "The Success Principles, How to Get From Where You Are to Where You Want to Be" en hún inniheldur 64 öflugar aðferðir, sem afreksmenn á öllum sviðum mannlífsins hafa notað með góðum árangri. Bókin er metsölubók en bækur Jacks hafa selst í yfir 100 miljónum eintaka á yfir 40 tungumálum.
Jack Canfield kemur til landsins á vegum fyrirtækisins “New Vision” sem er í eigu Kristjáns Viðars Haraldssonar sem er betur þekktur sem söngvari og lagahöfundur hljómsveitarinnar Greifanna. Fyrirtækið stendur fyrir fyrirlestrum, ráðstefnum og námskeiðum um mál er varða mannlegan þroska, heilsu, samskipti og allt sem snýr að því hvernig auka má afköst og bæta árangur.
Námskeiðið byrjar kl. 9.30 og lýkur kl.16.30. Miðaverð frá 19.900
Notendur velgengni.is fá 20% afslátt af námskeiðinu.
Afsláttarnúmerið þitt er: CHICKENSOUP8
Til að nýta þér 20% velgengni.is afsláttinn þá þarftu að fylla út ofangreint númer þegar þú ert að kaupa miðann, þá reiknast afslátturinn inn áður en gengið er frá kaupunum. . Ganga þarf frá miðakaupum fyrir kl 23:50, miðvikudaginn 30. janúar 2008. Ath einnig að ganga frá miðakaupum tímanlega, því byrjað er að fyllast í sumum verðflokkum. Eingöngu er hægt að kaupa miða á námskeiðið á www.midakaup.is