Jákvæðar yfirlýsingar
Yfirlýsingar eru ákaflega öflugar. Þær eru frábær verkfæri sem geta hjálpað þér að byggja upp sjálfstraustið, til að framkalla jákvætt og bjartsýnt viðhorf; til að breyta óæskilegum skoðunum og hegðunarmynstri í ný sem þú velur, til að draga inní líf þitt það sem þig langar. Jákvæðar yfirlýsingar geta hjálpað þér að stjórna streitu. Þær geta virkað eins endurforritun fyrir hugann.
Yfirlýsingar eru jákvæðar setningar sem þú skrifar niður og endurtekur síðan mörgum sinnum. Hugsaðu um öll svæði í lífi þínu þar sem þú vilt gera breytingar. Þig gæti langað til að bæta sambandið við makann, efla heilsuna eða létta þig. Yfirlýsingar er góður upphafs punktur að velgengni, samhliða öðrum frábærum verkfærum.
Búðu til lista yfir jákvæðar yfirlýsingar sem lýsa óska stöðunni og tengjast vandamálum þínum. Það er betra að nota stuttar staðhæfingar sem auðvelt er að muna. Notaðu alltaf jákvæð orð. Láttu jákvæðu yfirlýsingarnar vera einfaldar og afdráttalausar. Yfirlýsingar skulu vera í núlíðandi stund (frekar en framtíð).
Þú mátt endurtaka yfirlýsingarnar á hvaða tíma sem þú vilt, en þú getur líka ákveðið ákveðnar tímasetningar yfir daginn. Þú getur byrjað daginn fyrir framan spegilinn með því að fara með yfirlýsingar, þegar þú er að gera einhver vanaverk, rétt áður en þú sofnar á kvöldin osfv. Sjáðu einnig fyrir þér bestu mögulegu útkomu af vandamáli/verkefni sem þú ert að fást við með jákvæðum yfirlýsingunum.
Hér koma nokkur dæmi af einföldum jákvæðum yfirlýsingum:
Ég nýt þess að hraust/ur.
Ég vel að vera grannvaxin/n og heilbrigð/ur
Ég er nú X kíló á þyngd (þín óska þyngd)
Ég er sátt/ur við sjálfan mig.
Ég vel að vera jákvæð/ur.
Ég er hamingjusöm/samur í dag.
Ég er fjárhagslega örugg/ur.
Ég sleppi öllum ótta úr lífi mínu.
Ég nýt velgengni í öllu sem ég geri.
Ég laða að mér jákvætt fólk.
Byrjaðu að nota jákvæðar yfirlýsingar í dag til að laða að velgengni á öllum sviðum lífs þíns: fjáhagslega, vinnu, sambandi og fleiri.
Þín velgengni.