Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Algengar pælingar í ræktinni.

Hvort sem  þú viljir bæta á þig vöðvamassa , brenna eða bara bæta styrk og almenna vellíðan þá eru alltaf vissar spurningar sem geta vaknað.

Ertu að gera æfingarnar á þeim púlsi sem hentar best til fitubrennslu eða ekki ? Málið er einfaldlega það að það sem virkar best fyrir mig þarf ekki endilega að virka eins vel fyrir þína líkamsstarfssemi , það sem ég held að henti best fyrir alla er að prufa sig áfram til að sjá hvað virkar og hvað ekki. Ég ekki bara að tala um æfingalega séð heldur líka matarræðislega séð , það er eitt sem er alls ekki gott það er að taka einhverja staðlaða matseðla þennan daginn og hinn hinn daginn , það getur í versta falli unnið a móti þér frekar en með þér, þannig  virkar ekki alltaf að vera að leitast upp eftir öllum nýjungunum , þar er langur vegur frá .
 

Svo er annað það er ekki grafið í stein að þegar þú byrjar aftur að hreyfa þig eftir margra ára stopp að líkaminn umbreytist í einum grænum. Þegar það er búið að vanrækja líkamann lengi getur það oft tekið smá tíma fyrir vöðvanna að koma sér í gang aftur og byrja að vinna eðlilega á fitunni.
Það eru þó nokkrar gildar reglur sem gilda fyrir flesta í heilsurækt, þetta eru aðferðir sem rannsakaðar hafa verið í fjölda ára svo það er ekki verið að finna upp hjólið , ég reyni að grípa saman nokkrar algengar vangaveltur og spurningar. 

Hversu margar endurtekningar á ég að gera ?
Hversu oft á lyfta í hverju setti fer aðallega eftir því hvaða markmið þú hefur sett þér að fara eftir , þú getur verið að vinna að nokkrum markmiðum með því að lyfta lóðum : 

I. Þú getur verið að auka styrk með því að lyfta miklum þyngdum 4-6 sinnum . 

II. Þú getur verið að auka / tóna vöðvamassa þinn með því að gera 8-12 endurtekningar 

III. Þú getur verið að auka vöðaþol með minni þyngdum með 15-25 endurtekningum . 

IV. Þú getur verið að skera niður fitu og tóna þig líka með 15 endurtekningum með stuttri pásu milli setta .
 

Björn Þór Sigurbjörnsson
Einkaþjálfari / næringaráðgjafi
bjorn@body.is / www.body.is

ATH. Vorum að opna nýja öfluga vefsíðu á www.body.is


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband