Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hegðaðu þér eins og þú sért.

Ein af frábærum tæknum fyrir velgengni, er að hegða sér eins og þú sért það, eða ert búinn að fá það sem þig langar í.  Það meinar  hugsa eins, tala eins, klæða sig eins, hegða sér eins og líða eins og þér myndi líða ef þú værir búinn að ná markmiðið þínu. Að hegða sér eins og þú sért búinn að ná markmiðinu sendir öflug skilaboð til undirmeðvitundinar um að finna skapandi leiðir til að þú náir markmiði þínu.  Það forritar undirmeðvitundina í að láta heilann fara að taka eftir öllum sem muni hjálpa þér að ná árangri og það sendir sterk skilaboð til umhverfisins að þetta sé markmiðið sem þú vilt ná.

Fyrsta sinn sem ég tók eftir þessari tækni,  var ég staddur í bankanum sem ég skipti við. Þar voru nokkrir gjaldkerar að vinna, og ég tók sérstaklega eftir einum þeirra en hann var alltaf í jakkafötum, skyrtu og bindi.  Ólíkt tveimur öðrum karlkyns gjaldkerunum sem voru einungis í skyrtu með bindi, þessi ungi maður leit út fyrir að vera yfirmaður.

Ári seinna, tók ég eftir að hann hafði fengið stöðuhækkun, hann var kominn með sitt eigið skrifborð og var að taka á móti lánaumsóknum. Tveimur árum síðar var hann orðin yfirmaður lánadeildar og stuttu síðar orðin útibússtjóri.  Ég spurði hann um þetta einn daginn, og hann svaraði mér að hann hafi  alltaf verið viss um að hann vildi verða útibússtjóri, svo hann skoðaði vel hvernig útibússtjórinn klæddi sig og hann klæddi sig eins. Hann skoðaði hvernig útibússtjórinn kom fram við viðskiptavini og hann fór að koma fram við fólk eins. Hann byrjaði að hegða sér eins og útibússtjóri löngu áður en hann varð það sjálfur.

Trúðu og hegðaðu þér eins og þér sé ómögulegt að mistakast.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband