Þú ert það sem þú hugsar
Úrdráttur úr bókinni, Þú ert það sem þú hugsar eftir Guðjón Bergmann
Að nota hinar sjö mannlegu þarfir. (bls. 142)
Skilningur minn á hinum sjö mannlegu þorfum eykst með hverjum deginum sem líður. Fyrsta skrefið fyrir þá sem vilja lifa í samræmi við skilning sinn á þörfunum felst í því að fá yfirsýn, sjá nákvæmlega hvert ástandið er og byrja síðan að vinna út frá því.
Fyrsta skrefið krefst algjörs heiðarleika. Mikilvægt er að sjá hlutina eins og þeir eru, hvorki verri né betri, bara eins og þeir eru. Prófaðu að gefa þér einkunn á skalanum 0 – 10 í tenglsum við það hversu vel þú uppfyllir hverja þörf fyrir sig. Að koma þörfunum í jafnvægi er lífstíðarverkefni og þess vegna er gott að nálgast það þannig. Athyglin skiptist stöðugt á milli þess að hafa yfirsýn og einbeita sér algjörlega að einni þörf í einu.
Þegar fram líða stundir og lífið kemst í betra jafnvægi er hægt að nota skilning sinn á þörfunum sjö í tenglsum við margt annað en einungis líf einstaklingsins. Gott getur verið að skoða ástarsambönd út frá þörfunum, sjá hvar samböndin eru í jafnvægi og hvar frekari vinna þarf að eiga sér stað. Einnig er viturlegt að skoða barnauppeldi út frá þörfunum. Hægt er að finna leiðir til að sinna öllum þörfum barna með uppeldinu og kenna þeim á sama tíma að sinna þörfunum í eigin lífi. Að auki er hægt að skoða þarfirnar út frá viðskiptum, pólitík, samfélagsuppbyggingu og svona mætti lengi telja. Þessar sjö þarfir láta alls staðar á sér kræla. Ég vil minna á að það sem ég hef lagt mig fram um að útskýra á örfáum síðum í þessari bók er útskýrt nánar í bókinni The Seven Human Needs.
Eftir að haf lesið um hinar sjö mannlegu þarfir getur verið áhugavert að draga fam markmiðalistann sem þú bjóst til í lok þriðja kafla og bera hann saman við þarfirnar sjö. Ertu að uppfylla allar þínar þarfir með markmiðasetningunni? Ef svo er ekki getur ágæt viðbót við markmiðaæfinguna í þriðja kafla falist í því að svara eftirtöldum markmiðaspurningum í tenglsum við hinar sjö mannlegu þarfir:
1. Hvað get ég gert til að efla öryggi mitt á öllum sviðum lífsins?
2. Hvað get ég gert til að gera líf mitt meira spennandi, skemmtilegt, áhugavert og skapandi?
3. Hvað get ég gert til að efla sjálfstraust mitt og einstaklingsstyrk?
4. Hvað get ég gert til að byggja upp kærleika og styrkja tengsl mín við annað fólk?
5. Hvað get ég gert til að styrkja tjáningu mína á öllum sviðum?
6. Hvað get ég gert til að efla mig vitsmunalega og koma meiru af því sem ég veit og get í framkvæmd?
7. Hvað get ég gert til að finna eða styrkja mína andlegu tengingu og upplifa tilgang í lífinu?
Markmiðin sem verða til sem svör við þessum spurningum má vinna á sama hátt og gert var í lok þriðja kafla. Mundu að markmiðasetning snýst að hluta til um sveigjanleika og flæði. Um leið og þú eflist, styrkist eða færð nýjar upplýsingar, getur þú breytt markmiðum þínum til samræmis.
Þetta er úrdráttur úr bókinni Þú Ert Það Sem Þú Hugsar eftir Guðjón Bergmann.
Hugurinn er máttugur bandamaður þeirra sem hafa lært að virkja hann til góðra verka. Í þessari bók má finna áhrifaríkar hugmyndir og aðferðir sem geta hjálpað þeim sem vilja ná betri stjórn á eigin hugsunum. Með því að nýta efni bókarinnar til fullnustu má ná auknum árnangri á öllum sviðum lífsins, hvort sem er í einkalífi, viðskiptum eða félagslífi. Framsetningin er skýr og einföld en á sama tíma á heimspekin sér djúpar rætur í austrænum og vestrænum fræðum.
- Lærðu meira um það hvernig hugurinn starfar og hverju þú getur stjórnað
- Lærðu að nýta þér streitu til framdráttar en draga á sama tíma úr neikvæðum áhrifum hennar.
- Lærðu að byggja upp sjálstraust með því að setja þér markmið og efla jákvætt hugarfar.
- Lærðu að koma lífinu í betra jafnvægi með því að skilja hinar sjö mannlegu þarfir
- Lærðu einfalda hugleiðsluaðferð til að þjálfa upp einbeitingu og auka afköst.
Geisladiskur með öndunar-, slökunar- og hugleiðsluæfingum fylgja með bókinni
Almennt verð 2.490,-
Tilboðsverð fyrir notendur velgengni.is 1.790,-
Smelltu hér til að panta bókina