11 goðsagnir um velgengni sem halda aftur af þér.
1. Ef það á að gerast, þá er það undir mér komið.
Mikið notuð tilvitnun. Við fyrstu sýn, þá virðist hún vera skynsamlega rökrétt. Þú getur ekki beðið eftir einhverjum öðrum að framkvæma eitthvað sem er þitt að framkvæma. Þú þarft vissulega að vera ábyrgur fyrir því sem þú gerir, hins vegar, þá getur þú ekki komist þangað sem þú ætlar með því að vera einn að koma öllu í kring. Lykillin er að leyfa sjálfum þér að leita aðstoðar og ráðleggingar og biðja um hjálp þegar þú þarfnast hennar.
2. Velgengni kemur í bók eða boxi.
Hægt er að finna frábærar upplýsingar eftir frábæra hugsuði í bókum eða boxi, en lengra nær það ekki. Lykilinn er að yfirfæra það sem þú hefur lært yfir í aðstæðurnar sem þú ert í og með virkum tilraunum, búa til þína eigin formúlu að velgengni.
3. Ef ég bara sé hlutina fyrir mér nógu skýrt, þá munu allir mínir draumar rætast.
Að sjá hlutina myndrænt fyrir sér er mjög öflug leið sem hjálpar þér að sjá skýra mynd í huganum. Að hafa myndræna fyrirmynd er mjög mikilvægt. Lykilinn er að magna upp eftirvæntinguna í það sem þig langar til og taka síðan skrefin í réttu samhengi til framkvæmda.
4. Það er eitthvað sem þarf að laga.
Mörg okkar hafa fengið það hugboð að það sé eitthvað verulega rangt við okkur sem þarfnist lagfæringar. Sannleikurinn er að við erum þegar skapandi, úrræðagóð, heil og heilög og við höfum nú þegar allt sem okkur vantar. Lykilinn er að endurheimta það.
5. Ég verð að vinna í veikleikunum mínum.
Mikilli orku er sóað í það að reyna að leiðrétta öll svið veikleika okkar. Lykilinn er einfaldur, nýttu þér styrkleika þína. Einbeittu þér að því sem þú gerir vel og gerðu meira af því. Lærðu að fela öðrum að framkvæma restina.
6. Því meira sem ég framkvæmi, því betra.
Að framkvæma eitthvað, bara til að vera með eitthvað í gagni mun halda þér uppteknum allt þitt líf, án þess að þú munir ná endanlegu takmarki þínu. Lykilinn er að framkvæma það sem andargiftin segir þér, það sem kemur frá þínu æðra sjálfi.
7. Ég verð að útrýma sjálfinu.
Sjálfið hefur frekar slæmt orðspor. Það er frekar kalhæðnislegt, þar sem allir á jörðinni hafa eitt. Eins og allt annað í sálfræði, þá hefur sjálfið mismunandi þroskaþrep. Lykilinn er að vera nægjanlega meðvitaður til að leyfa sjálfinu flæða blíðlega um leið og þú leyfir sálinni skína á réttan hátt.
8. Ég verð að viða að mér öllum upplýsingu og breytingum í minni grein.
Við lifum í upplýsinga-ofhleðslu umhverfi og tilhneiging virðist vera að það sé að aukast, frekar en hitt. Það er ekki vinnandi vegur að vita allt um alla hluti. Lykilinn er að trúa á þá hugmynd og skilja að þú munt frá réttu upplýsingarnar, nákvæmlega þegar þú þarft á þeim að halda.
9. Ég veit hvað ég vil.
Þú heldur kannski að þú hafir þetta allt skýrt og heldur jafnvel að þú vitir hvernig þú átt að nálgast það. En málið er að flestar manneskjur eru ekki í snertingu við hjartað eða það sem það í raun þráir. Þetta þýðir að sál þín getur haft algjörlega aðra hugmynd um það sem þig langar í og vantar. Lykilinn er að skilja að hugurinn hefur takmarkaða sýn, en það er eitthvað innra með þér sem sannarlega veit.
10. Tilfinningar eru eitthvað sem á að stjórna.
Tilfinningar eru ein af okkar öflugustu sjálfs-viðvörunar verkfærum. Í hvert sinn sem við upplifum sársauka eða vonbrigði inniheldur það skilaboð. Reiði er dæmi um tilfinningar sem birtast þegar eitthvað stríðir á móti okkar persónulegu gildum. Það hefur verið sagt að tilfinningar séu hreyfiafl. Lykilinn er að komast í tengingu við tilfinningarnar, upplifa augnablikið og síðan gera eitthvað sem hjálpar þér að vinna úr því sem þú er að upplifa ---- skrifa niður, dansa, gráta, biðja osfv.
11. Þegar ______________ gerist, þá mun ég verða hamingjusamur.
Enda þótt hamingja sé hugarástand, þá bíður margt fólk eftir stóru stöðuhækkunni, fullkomna makanum, eða gildri bankainnistæðu til að geta orðið hamingjusamt. Lykilinn er að velja að vera hamingjusamur einmitt hér, einmitt núna --- jafnvel þakklátur -- hvaða hluti sem þú hefur eða hefur ekki upplifað.