Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Peninga yfirlýsingar.

Yfirlýsingar eru staðhæfingar sem þú vilt að séu sannar. Þessi aðferð er ekki ný – í raun er þetta aðferð sem hefur verð notuð af fólki sem nýtur velgengni í aldir.  Yfirlýsingar hafa hjálpað mörgum að ná frábærum árangri í lífinu. Yfirlýsingar eru besta leiðin til að endurforrita hugann til að ná fullkomnum niðurstöðum. Byrjaðu að nota peningar yfirlýsingar daglega til að draga að þér peninga.

Yfirlýsingar þurfa ekki að vera langar eða flóknar, því ef þær eru það – munt þú aldrei muna þær. Notaðu yfirlýsingar reglulega. Endurtaktu yfirlýsinguna fyrir sjálfan þig, aftur og aftur þangað til þú trúir þeim. Þú munt þá byrja að hegða þér eins þú sért sjálfsöruggur og hæfur, vegna þess að hugurinn hefur samþykkt þetta sem nýtt ástand.

Til að eyða óttanum um að þú eigir ekki nægja peninga, segðu yfirlýsinguna og greiddu reikningana þina með jákvæðum peningar yfirlýsingum. Þetta mun hjálpa þér að breyta neikvæðum hugsunum í kringum reikninga. Endurtaktu peninga yfirlýsingarnar með ástríðu, því meiri tilfinningar sem þú leggur í það þegar þú segir þær, því virkari eru þær.

Yfirlýsingar verða að vera í núliðinni tíð. Hafðu aldrei orðin nei, ekki eða annað neikvætt  í yfirlýsingunum.

Það er mikilvægt að yfirlýsingarnar séu jákvæðar og áhugaverðar. Stilltu þær frá tíma til tíma til að þær verði ekki leiðigjarnar. Skemmtu þér við að fara með yfirlýsingarnar.

Mesta áskorunin er að muna að segja yfirlýsingarnar daglega. Þú getur skrifað peninga yfirlýsingarnar á Post-It miða og límt þær þar sem þú ert að rekast á þær reglulega. Hafðu þær á skrifborðinu þínu, í bílnum, í  veskinu þannig að þú sjáir þær þegar þú greiðir reikningana. Hafðu lista með yfirlýsingunum á speglinum sem þú notar á morgnana og á kvöldin. Í hvert skipti sem þú lýtur í spegilinn, lestu yfir peninga yfirlýsingarnar.

Hér eru dæmi um nokkrar peninga yfirlýsingar:

Ég hef alltaf meira en nóg af peningum til að mæta þörfum mínum.

Ég móttek endalaust flæði af hagsæld í lífi mínu.

Ég er rík manneskja.

Ég er auðugur.

Ér er efnaður.

Ég er peningasegull.

Ég greiði reikninga og önnur útgjöld með auðveldari hætti hvern mánuð.

Notaðu yfirlýsingarnar til að laða að þér peninga þegar þú ert að bíða í umferðinni, hvenær sem þú hugsar um það, á morgnana og þegar þú ferð að sofa á kvöldin.

Sameinaðu yfirlýsingarnar við það sem þú sérð fyrir þér daglega og það mun hjálpa þér að ná draumum þínum fyrr.

Gangi þér vel.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband