Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hvernig nýtist NLP mér?

NLP er aðferðafræði sem miðar að því að ná tökum á lausnarmiðuðu hugarfari og beinir sjónum
aðallega að því hvernig við hugsum í útkomum. Dæmi um slíkt er hvernig okkur tekst að leiða hluti til betri vegar í samskiptum, hvort heldur sem er félagslegum samskiptum, eða nánum samskiptum eins og hjónaböndum og ástarsamböndum.
 NLP hefur lausnir og leiðir til að þjálfa upp hugarfar, þar sem við getum ávalt komist á snöggann og öruggann hátt í lausnir ,í stað þess að lenda síendurtekið í hindrunum og erfiðum hugsunum sem viðhalda depurð, vonleysi og leiðindum.
 NLP kemur með nýja nálgun á notkun tungumáls, hvort heldur sem er í samskiptum á milli fólks
 og ekki síður frábærar lausnir á innra tungumáli hugans. 
 

Námskeiðið: 

NLP Practitioner
(Neuro Linguistic Programming)
 
Aðeins kennt einu sinni á ári.
Kennt er m.a.:
- Að vera mótækilegur og læra á auðveldan hátt.
- Að skapa nýtt samskipta mál.
- Að skapa þína eigin framtíð.
- Að stjórna samtölum.
- Að vekja snillinginn í sjálfum sér
- Að leysa upp neikvæðar venjur.
- Að lesa persónuleika fólks.
- Venjur til varanlegs árangurs.
Námskeiðið er haldið:
Helgarnar 22. - 24. febrúar og 29. febrúar- 02.mars 2008.
Um er að ræða eitt sjálfstætt námskeið.
Kennt er föstudaga kl.18-22. laugardaga og sunnudaga kl.10-18.

 

Verð á námskeiðinu er krónur 125.000,- staðfestingargjald er 10.000,-
NLP undirmeðvitundarfræði er fyrir alla og er okkar innra
tungumál milli hugsana og undirmeðvitundar.
NLP er notað af fólki um allan heim sem
hefur náð frábærum árangri í lífinu.
 

 
Vitnisburðir um NLP námskeiðin
"Stórkostlegt tæki til sjálfsskoðunnar og þroska".

"NLP er algjör snilld því að það vekur upp snillinginn innra með mér".

"Samþjappað úrvalsefni – góð tæki og tól sem að við fáum upp í hendurnar – undir okkur sjálfum komið hvað og hvernig við gerum við þessi fínu tæki".

"Þetta hjálpar mér að hreinsa til í skúffunum í höfðinu
á mér – aðskilja persónu mína frá öðrum".

"Leiðin að eigin lífsfyllingu og stefnu. Óumdeilanlega frábært".

"Flott námskeið":

"Hniðmiðað – námskeið sett fram á einfaldann og aðgengilegann hátt".

"NLP námskeiðið hjá Kára Eyþórssyni hefur breytt lífi mínu til batnaðar. Sé sjálfann mig í nýju ljósi og geri mér grein fyrir möguleikum mínum. NLP mun nýtast mér til betra lífs":

"Ef þú telur þig geta vaxið og þroskast þá er þetta áburðurinn".

" Frábært námskeið og gott að þetta er til og getur bætt lífið mikið í kringum okkur".

"Að mínu mati ert þú Kári, frábær kennari, sem ég treysti og virði".

"Það kom mér fram í lífið, þar sem ég hef verið týndur gleðinni í 40 ár, takk takk takk".

"Þær aðferðir sem að ég hef lært hafa nýst mér vel í einkalífinu og í starfi".

"NLP –námskeið fyrir þá sem að hafa áhuga á að
bæta sig sem persónu, í starfi og í lífinu öllu".

"Það kom mér á óvart hversu mikla orku maður notar til að
vinna gegn sér, en ekki til að nýta sér til framdráttar".

"Mér finnst námskeiðið gott í heild sinni og þá sérstaklega
verklegu æfingarnar þær festast svo vel í minni".

"Kári kærar þakkir fyrir að deila því sem að þú hefur áorkað
og lært til okkar. Það er ómetanlegt".

"Ég var með lága sjálfsvirðingu. En eftir sex daga á námskeiðinu breyttist þetta þvílíkt.
Stofnun á fyrirtæki og sjálfstæði, sterkar skoðanir og sterk sýn á
framtíðina. Mín líðan er best og verður bara betri".

"Fyrir mig hafa þessar tvær vikur verið einstakt tækifæri til að takast
á við hluti í lífi mínu, mér og mínum til betra lífs".

"Mjög gott námskeið og skemmtilegt að öllu leyti".

"Ef þú vil breyta einhverju í lífinu – þá er þetta málið".

Ótrúleg leið til samræma huga og innri styrk".

"Þroskandi – praktíst til að nota bæði í lífinu og vinnu,
það er ekki hægt annað en að vaxa á allan hátt".

"Frábært námskeið. Aðstoðaði mig (neyddi) mig til að samþykkja
færni mína. Takk fyrir meiriháttar námskeið".

"Það er stórkostlegt að vera á námskeiði sem að gefur manni diplóma um leið og það hreinsar manns dýpstu fyrirstöður í að fá að blómstra á öllu sviði lífsins".

"Var fróðlegt og skemmtilegt".

"Frábært námskeið".

Um Kára:
Kári Eyþórsson (CMH, CHYP, PNLP, MPNLP) hefur margra ára reynslu sem ráðgjafi, á undanförnum árum hefur hann einbeitt sér meira að fjölskyldu og einstaklingsráðgjöf, byggða á kenningum Virginu Satir og Milton H Erickson svo og NLP (Neuro-Linguistic Programming) sem er undirmeðvitundarfræði. Sérstaða Kára hefur þó alltaf verið persónuleikagreiningar sem flýta mjög fyrir úrlausnum.
Kári stundaði nám við THE PROUDFOOT SCHOOL OF CLINICAL HYPNOSIS AND PSYCHOTHERAPY á árunum 1996-1998 þar sem hann lærði dáleiðslur (CMH), dáleiðslumeðferðir (CHYP), undirmeðvitundarfræði (PNLP), fjölskyldumeðferð og taugatungumál (MPNLP), Gestalt meðferð og fl.
Kári hafði fyrir þann tíma starfað sem ráðgjafi í nokkur ár út frá persónuleikagreiningum.
 
Kári er aðili að og samþykkur af UK GUILD OF HYPNOTIST EXAMINERS.

Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar,senda fyrirspurn eða til að panta.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband