Að viðhalda hvatningu – 5 ráð.
Hvatning er öflug leið til að hjálpa þér að ná árangri í viðskiptum. Árangurinn veltur á því því hversu ákveðinn þú ert í að sinna verkefnum af eldmóði.
Afleiðing þess að vera hvetjandi.
Fólk sem er hvetjandi er hamingjusamara, virkara og hefur meiri orku. Það er sveigjanlegra og bjartsýnna og er líklegra til að vera við góða heilsu. Þetta eru aðeins fá þeirra atriða sem eru afleiðing þess að vera jákvæður.
Hvað er hvatning?
Skilgreining í orðabók á orðinu hvatning er: meðvituð aðgerð annað hvort á eða innra með persónu til að hrinda af stað áhveðinni hegðun. Í stuttu máli hæfileiki til að framkvæma. Fólk veit oftast allt sem þarf að gera til að ná árangri en það bara framkvæmir ekki.
Það eru örugglega hundrað leiðir til að viðhalda hvatningu, en hér eru fimm sem gott er að stunda reglulega.
1. Setja sér markmið. Áður var rætt um það hversu mikilvægt er að hafa markmið. Við hugsum oft um að markmið séu einungis fyrir stór fyrirtæki, en mundu að líf þitt eru þín viðskipti. Spurðu hvern þann sem nær árangri um hvort þeir hafi sett sér markmið, ég er viss um að 99% þeirra segja já. Við eigum að setja okkur stutt, milli og langtíma markmið í fimm sviðum: fjölskyldu, fjármála, andlegu, frama og líkamlegu.
2. Finndu jákvætt fólk til að umgangast. Ég heyrði einu sinni þetta orðatiltæki - Skemmda eplið spillir félögunum -. Ef þú umgengst jákvætt fólk, muntu vera hamingjusamari og og það mun líka hvetja til að viðhalda eldmóði.
3. Brostu. Ég er viss um að þú hafir heyrt að bros er smitandi. Þegar þú brosir til einhvers og hann brosir til baka til þín finnur þú hvað það er hvetjandi og jákvætt.
4. Talaðu jákvætt. Eins og með brosið og að nota jákvæð orð. Það fær ekki aðeins þér til að líða betur, heldur hefur það einnig jákvæð áhrif á fólk í kringum þig. Að hafa ákafan hljóm í röddinni og brosa þegar þú talar mun draga fram jákvæð viðbrögð í öllum málum.
5. Að lesa hvetjandi bækur og hlusta á hvatningarfyrirlestur. Það eru mínar uppáhalds leiðir til að viðhalda hvatningu. Ég var einu sinni spurður hvernig ég fari að því að sjá alltaf jákvæðar og góðar hliðar á hlutunum jafnvel þegar allt í kringum mig væri að falla saman. Svar mitt var einfalt. Á leiðinni í vinnuna hlusta ég ekki á útvarpið. Í staðinn hlusta ég að hljóðabækur eða uppbyggjandi fyrirlestra. Í dag getur þú fundið mikið af góðum hljóðbókum, greinum og þess háttar á internetinu. Þú getur líka farið á bókasafnið og fundið góðar bækur þar.
Að lokum
Við eigum öll okkar slæmu daga, en að viðhalda hvatningu er ekki bara að fara með jákvæðar staðhæfingar. Að vera jákvæður er að geta haldið áfram að vinna með markmiðin okkar, jafnvel þegar allt í kringum okkur virðist vera að falla saman.
Þín velgengni!