Vinamót eftir Bergþór Pálsson er er falleg og gagnleg bók fyrir alla gestgjafa um hvernig gera á góða veislu ógleymanlega.
Hvað er kokteilklæðnaður? Hvernig eru eftirréttahnífapör lögð á borð? Á ég að lyfta glasi ef skálað er fyrir mér? Hvernig er hjónum skipað til sætis? Hvað má líða langur tími þar til veitingar eru bornar fram? Hvern á að kynna fyrst? Hvað á að gera við servíettuna ef maður þarf að bregða sér frá?
Þessum og mörgum fleiri spurningum er svarað í þessari glæsilegu og handhægu bók. Jafnframt er lögð áhersla á að hlýlegt og létt viðmót skipti meira máli en reglur eða siðvenjur. Höfundur gefur góð ráð um val á gestum, boðskort, borðbúnað, móttöku gestanna og hvernig best sé að skipa þeim til sætis, samræðulist og tækifærisræður, líkamsstöðu og klæðnað, borðsiði og skálaræður og ótalmargt fleira sem gerir góða veislu
ógleymanlega.
„Skemmtileg og fyndin … sjarmerandi eins og höfundurinn.“
Katrín Jakobsdóttir / Mannamál / Stöð 2
„Kennsla í mannasiðum.“
Sigmundur Ernir Rúnarsson / Mannamál / Stöð 2
Höfundur: Bergþór Pálsson
Sendingarkostnaður innifalinn í verði