Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Listin að stjórna eigin lífi


0 kr.

UPPSELD

 

Listin að stjórna eigin lífi – virkjaðu þinn innri kraft eftir Randi B. Noyes  hefur selst í meira en 50.000 eintökum í Noregi frá því að hún kom fyrst út þar árið 1995 og verið þýdd á fjölmörg tungumál. Bókin fjallar um sjálfsstjórn í verki og byggir meðal annars á fjölbreyttri þekkingu á tilfinningagreind, þ.e. hæfileikanum til að bera kennsl á, skilja, bregðast við og stýra tilfinningum sínum með það fyrir augum að nýta þær til að skapa það líf sem maður vill lifa.

 

Til að ná árangri í lífinu og geta stýrt sjálfum okkur og öðrum verðum við nefnilega að átta okkur á styrkleikum okkar og hvernig við nýtum þá sem best. En há greindarvísitala og tæknileg þekking er ekki nóg, við verðum að virkja tilfinningagreind okkar til að ná lengra, við verðum að hafa hjartað með í ráðum ekkert síður en heilann – en þá verða okkur líka allir vegir færir.

 

Bókin hjálpar þér að:

- kynnast sjálfum þér betur og uppgötva styrkleika þína

- skilgreina og yfirstíga hindranir

- hvetja sjálfan þig og aðra áfram

- bæta samskiptahæfni þína og leiðtogahæfileika

- takast á við streitu og öðlast sálarró

 

Þetta er bók sem veitir hugrekki, von, kraft og stefnufestu. Hún mun hjálpa þér að láta drauma þína rætast, taka skynsamlegri ákvarðanir og öðlast aukna hamingju bæði í einkalífi og starfi.


Þú berð ábyrgð á eigin lífi – taktu stjórnina í þínar hendur!

 

Ísak Harðarson þýddi.

 




Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband