Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hamingja í lífi og starfi


2.990 kr.

Bókin Hamingja í lífi og starfi er eftir höfunda bókarinnar Leiðin til lífshamingju sem var á metsölulista The New York Times í nærri tvö ár, þá Dalai Lama og Howard C. Cutler.

Starf okkar mótar líf okkar framar öðru. Dalai Lama er sammála þeirri skoðun í nútímasálarfræði að beint samband sé á milli áhuga okkar á vinnunni og þess hve hamingjusöm við erum.

Í bókinni er leitað svara við spurningum á borð við:

● Hvert er sambandið milli vinnunnar og sjálfsþekkingar einstaklingsins?

● Hverjar eru aðalástæðurnar fyrir óánægju fólks og hvernig tökumst við á við hana?

● Hvernig leysum við úr deilum við samstarfsfólk okkar og yfirmenn?

● Hvernig tökumst við á við öfund, reiði og neikvæðni á vinnustað?

● Hvaða áhrif hefur frelsisskerðing vinnunnar á hamingju okkar?

● Hvernig tökumst við á við leiða og einhæfar vinnuaðstæður?

● Hvernig tökumst við á við nýja vinnu eða atvinnuleysi?

Bókin er ómetanleg uppspretta styrks og friðar fyrir fólk í lífi og starfi.

Ísak Harðarson þýddi. 

Höfundar: Dalai Lama, Howard C. Cutler

Sendingarkostnaður innifalinn í verði



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband