Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Börn eru klár


0 kr.

 

UPPSELD

Barnið

nagar neglurnar

nær ekki á klósettið í tæka tíð

fær martraðir

getur ekki setið kyrrt

er uppstökkt og árásargjarnt í skólanum

er þunglynt

getur ekki einbeitt sér

getur ekki verið eitt


Flestir eiga á uppvaxtarárum sínum við einhverja erfiðleika að etja, svo sem hræðslu, slæman ávana eða einbeitingarskort. Yfirleitt er um skammvinnan vanda að ræða en stundum er hann þó svo langvinnur að leita þarf hjálpar fyrir hönd barnsins.

 

Ég get-aðferðin er margreynd og viðurkennd leið til að hjálpa börnum að tileinka sér nýja færni og leysa þannig úr erfiðleikum sínum á jákvæðan og árangursríkan hátt.

 

Í Börn eru klár! lýsir höfundurinn, finnski geðlæknirinn Ben Furman, nýstárlegri aðferð sem byggð er á 15 markvissum skrefum. Gunnhugmynd Ég get-aðferðarinnar er sú að barnið eigi ekki við vandamál að stríða heldur eigi einfaldlega eftir að tileinka sér ákveðna færni. Í bókinni eru tekin fjölmörg dæmi og fjallað um hvernig Ég get-aðferðin nýtist til að leysa vandann. Höfundur kemur með margvíslegar hugmyndir um hvernig bregðast megi við ólíkum aðstæðum með þeim hætti að barnið fái áhuga á að leysa verkefnið og eftirleikurinn verði skemmtilegur.

 

 

Börn eru klár! er leiðbeiningabók um það hvernig börn geta sigrast á ýmsum erfiðleikum með því að tileinka sér ákveðna færni. Þetta er eins konar handbók fyrir uppalendur, foreldra, starfsfólk leikskóla og kennara. Bókin er skrifuð á jákvæðan og skemmtilegan hátt enda er hún mikið notuð af fagfólki víða um heim.

 

Börn eru klár! er sett upp á einfaldan og skýran hátt og er auðveld aflestrar. Komið hefur í ljós að Ég get-aðferðin reynist þeim vel sem starfa með börnum sem eiga við sértæka erfiðleika að stríða, svo sem ofvirkni, enda er bókin þróuð í samstarfi við sérkennara.

 

Börn eru klár! hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál. Þýðandi bókarinnar, Helga Þórðardóttir, mun fylgja bókinni eftir með fyrirlestrum og námskeiðahaldi fyrir leiðbeinendur sem vilja þjálfa aðra í að nota þá nýstárlegu hugmyndafræði sem lýst er í bókinni.

Helga er kennari, sérkennari, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur að mennt með mastersnám í félagsvísindum. Hún hefur verið að kenna þá hugmyndafræði sem bókin byggir á til margra ára, bæði á námskeiðum í Endurmenntun Háskóla Íslands, félagsráðgjafanemum í Háskóla Íslands og á námskeiðum sem hún hefur haldið sjálf fyrir ýmsar starfsstéttir. Hugmyndafræðin nefnist Solution Focused Brief Therapy eða lausnamiðuð skammtímameðferð.

Bókin hentar öllum sem sinna börnum, jafnt foreldrum sem fagmönnum.

 

 

Höfundur: Ben Furman




Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband