Bókin Betra bak er einstaklega handhæg og eiguleg bók fyrir alla sem vilja styrkja bakið og losna við eymsl og verki. Lýst er jafnt hefðbundnum sem náttúrulegum leiðum sem eiga það sameiginlegt að hafa skilað góðum árangri.
Bakið er einn viðkvæmasti hluti líkamans og bakverkir hrjá fjölda manns, suma stöðugt en aðra einungis endrum og eins – en oft af miklum þunga. Ýmsar ástæður geta verið fyrir þessum verkjum og í Betra bak er leitast við að hjálpa lesendum að greina vandann. Þá er í máli og myndum gerð grein fyrir ýmsum leiðum sem miða að því að draga úr verkjum og óþægindum, svo og aðferðum við að fyrirbyggja að vandinn skjóti upp kollinum á ný.
Hvað er til ráða?
Markmið þessarar bókar er tvíþætt: Að hjálpa fólki að koma í veg fyrir bakverk og að losna við sársaukann, óþægindin og bjargarleysið sem fylgja því þegar hann lætur á sér kræla. Með markvissum hætti er þér kennt hvernig þú getur komist hjá bakverkjum og hvað þú getur gert ef þú færð þá. Lögð er rík áhersla á að endurheimta hreyfigetuna eins fljótt og unnt er með æfingum af ýmsu tagi sem kenndar eru í þessari bók.
Líf án bakverkja
Boðskapur bókarinnar er einfaldur: Stundaðu æfingarnar og beittu aðferðum og ráðleggingum sem lýst er í henni, en hugaðu líka að lífstíl þínum í heild. Heilbrigt líferni á öllum sviðum er besta forvörnin gegn bakverkjum og vísasta leiðin til að draga úr þeim vanda sem þú kannt að eiga við að etja nú þegar – og jafnvel losna við hann fyrir fullt og allt.
Höfundur: Jenny Sutcliffe
Sendingarkostnaður innifalinn í verði