UPPSELD
Bók sem getur breytt lífi þínu
Fíknir er bók um eðli fíknar og leiðir til að losna úr vítahringnum eftir Craig Nakken í þýðingu Stefáns Steinssonar.
Craig Nakken hefur í rúman aldarfjórðung fengist við að aðstoða fólk að losna úr greipum fíknar. Hann hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða víða um heim og hefur bók hans selst í stórum upplögum og vakið óskipta athygli.
Örvænting skömm og tilfinningaleg einangrun einkennir líf fíkla og gildir þá einu hvort um er að ræða áfengisfíkn, spilafíkn, vinnufíkn, matarfíkn, kynlífsfíkn eða eyðslufíkn. Í bókinni er útskýrt á skýran og aðgengilegan hátt hvernig fólk ánetjast fíkn – hvað gerist innra með því þegar það verður fíkninni að bráð. Fjallað er um sálræna og erfðafræðilega þætti sem tengjast fíkn, þróun fíknarinnar og bent á árangursríkar leiðir út úr vítahringnum.
Fíknir er bók sem á brýnt erindi til allra sem lent hafa í hremmingum fíknar – jafnt fíkla sem aðstandenda þeirra.
Páll Einarsson MSc. í sálrænni meðferð og ráðgjöf mælir eindregið með bókinni og segir hana meðal annars afar gagnlega fyrir fíkla og aðstandendur þeirra og skyldulesningu fyrir fagfólk.
Höfundur: Craig Nakken
Sendingarkostnaður innifalinn í verði