Þetta er mannbætandi bók og höfundurinn, Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur, fellur ekki í þá gryfju að boða einfaldar skyndilausnir. Miklu fremur vekur hún athygli okkar á ögruninni sem í því felst að vera heilsteypt manneskja og lifa lífi sínu með fullri sjálfsvitund.
Leggðu rækt við sjálfan þig kom fyrst út 1999. Bókin vakti mikla athygli og varð metsölubók, bæði innbundin og í kilju.
„Þetta er alveg stórmerkileg bók … bók sem flestir ættu að lesa því að hún er líka skemmtileg.“
Bylgjan/Súsanna Svavarsdóttir
Höfundur: Anna Valdimarsdóttir
Sendingarkostnaður innifalinn í verði