Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Leggðu rækt við ástina - kilja


2.180 kr.

Hvað er ást? – Að elska eða vera ástfanginn? – Ást og hamingja – Mitt persónulega rými – Elskaðu sjálfan þig – Að rækta ástarsamband – Að auðga kynlífið – Afbrýðisemi og ótrúnaður – Ástríðufullt líf

Í ástarsambandi afhjúpum við sjálf okkur og tjáum okkar innstu og dýpstu tilfinningar. Og það er ekki alltaf auðvelt. Þeir sem trúa á ástina vita að hún leysir ekki öll vandamál. Ástinni fylgir áhætta – eins og lífinu, og því er mikilvægt að trúa á sjálfan sig. Jákvætt hugarfar og gott hjartalag haldast í hendur. Þegar við þroskum með okkur ástríkan huga öðlumst við frelsi til að njóta. Til að verða hamingjusöm er ekki nóg að finna „þann eina rétta“ eða „þá einu réttu“, heldur verðum við að byrja á sjálfum okkur og leggja rækt við ástina í eigin brjósti. Þannig þroskumst við sem manneskjur.

Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur hefur áður sent frá sér hina vinsælu bók Leggðu rækt við sjálfan þig. Í þessari nýju og þörfu bók, Leggðu rækt við ástina, fjallar hún á opinskáan hátt um hina þyrnum stráðu braut ástarinnar. Hér er fléttað saman almennum hugleiðingum og lýsingum úr heimi ástarinnar þar sem erótíkin blómstrar og reynsla og innsæi höfundar nýtur sín vel.

Þessi bók á erindi við alla eins og ástin.


Höfundur: Anna Valdimarsdóttir

Sendingarkostnaður innifalinn í verði



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband