Loksins komin! Vegleg heimildarmynd um The Secret, sem kom út í íslenskri þýðingu nýverið. Áhorfandinn er leiddur áfram í gegnum viðtöl við höfunda, reynslusögur fólks sem hefur notað Leyndarmálið til að sigrast á erfiðleikum eða afla sér velsældar og ýmsa spekinga sem hafa rannsakað fyrirbrigðið. Ómissandi mynd, fáguð og áhugaverð. Athugið að myndin er á ensku og ótextuð.
Kjarni Leyndarmálsins felst í lögmáli aðdráttaraflsins sem er óbreytanlegt líkt og önnur náttúrulögmál. Allt sem gerist í lífinu löðum við að okkur. Ef við náum að stilla tilveruna og það sem við viljum öðlast á sömu tíðni, getum við kallað til okkar betra líf, andlegt og veraldlegt. Þetta er sjálft Leyndarmálið – það er falið innra með hverjum og einum og möguleikarnir eru endalausir.
Leyndarmálið felur í sér þekkingu fræðimanna, kvenna og karla, sem hafa nýtt sér lögmálið. Áhrifaríkar frásagnir lýsa hvernig þau beittu Leyndarmálinu við að uppræta sjúkdóma, öðlast auðæfi og sigrast á hvers konar hindrunum til að afreka það sem margir myndu telja óhugsandi.
Leyndarmálið hefur vakið heimsathygli á örskömmum tíma og ekki að ástæðulausu.
Loksins hafa menn uppgötvað gamlan sannleika sem hefur geymst í ævafornum ritum, munnlegum heimildum, bókmenntum, trúfræði og heimspeki. Meðal þeirra sem lifðu eftir Leyndarmálinu má nefna Einstein, Beethoven, Galileo og Edison.
Hér er brotunum safnað saman í heildstæða hugmyndafræði og Leyndarmálið opinberað.
Sannleiksbrot úr Miklu Leyndarmáli hafa fundist í ævafornum ritum, munnlegum heimildum, bókmenntum, trúfræði og heimspeki. Í fyrsta sinn hefur öllum upplýsingum um Leyndarmálið verið raðað saman í eina bók og útkoman er ótrúleg uppgötvun sem mun hafa örlagarík áhrif á alla þá sem kynna sér hana. Í þessari bók muntu læra að beita Leyndarmálinu við hvaða aðstæður sem er, hvort sem um er að ræða heilsu, fjárhag, sambönd, hamingju eða mannleg samskipti. Þú munt átta þig á að innra með þér er falinn óendanlegur kraftur til að skapa hamingjuríkt líf.
Höfundurinn Rhonda Byrne hefur eins og við öll verið að fikra sig áfram til aukins þroska. Eftir að hafa uppgötvað Leyndarmálið ákvað hún að leiða saman ólíka aðila, s.s. rithöfunda, presta, kennara, kvikmyndaframleiðendur, hönnuði og útgefendur til að gera hugsýn sína um Leyndarmálið að veruleika og færa fólki bjartsýni og gleði um heim allan.
Sendingarkostnaður innifalinn í verði