Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
Lífsreglurnar fjórar ætti að vera leiðarvísir að uppljómun og persónulegu frelsi.
Deepak Chopra, höfundur Lögmálanna sjö
Lífsreglurnar fjórar ætti að vera skyldulesefni fyrir alla.
Marta Ernstsdóttir; Ljósheimum
Ef þessi bók breytir ekki lífi þínu, mun hún svo sannarlega bæta það og hjálpa þér að losna við gremju, eigingirni og önnur mein.
Páll Óskar, tónlistarmaður
Sendingarkostnaður innifalinn í verði