Á disknum eru slökunaræfingar sem hjálpa þér að nýta betur þá hæfileika sem þú veist að þú býrð yfir og uppgötva nýja. Þetta er frábær leið til að byggja upp ástríður sem þú notar til að ná tökum á lífinu, ná árangri og síðast en ekki síst... njóta þess að vera til.
Tónlistin er samin og flutt af Friðriki Karlssyni sem einnig stjórnaði upptökum.
Friðrik hefur verið búsettur í Englandi síðan 1996. Hann hefur verið virkur í tónlistarlífinu þar og spilað með fjölmörgum heimsþekktum listamönnum. Friðrik er mikill áhugamaður um mannrækt og hefur m.a. meistararéttindi í NLP, dáleiðslu og Time Line Therapy.
Höfundur:
Kári Eyþórsson (CMH, CHYP, PNLP, MPNLP) hefur margra ára reynslu sem ráðgjafi og á undanförnum árum hefur hann einbeitt sér meira að fjölskyldu- og einstaklingsráðgjöf sem byggir á kenningum Viginiu Satrin og Milton H Ericksson svo og NLP (Neuro-Lingustic Programming) sem hefur verið þýtt sem ,,undirmeðvitundarfræði". Sérstaða Kára hefu þó alltaf falist í notkun hans á persónuleikagreiningum sem flýta mjög fyrir úrlausnum.
Einnig fáanlegir diskar:
Betri svefn - áhrífarík slökunaræfing sem róar hugann
Líf án reykinga - áhrifarík slökunaræfing fyrir þá sem vilja líf án reykinga
Viltu ná tökum á þyngdinni - áhrifarík slökunaræfing fyrir alla sem vilja ná tökum á þyngdinni.
Upptökur fóru fram í júní 2003 í Rover of Light Studios, Claygate, Surrey í Englandi.
Sendingarkostnaður innifalin í verði