Á disknum er að finna slökunaræfingu sem er blanda tónlistar og talmáls. Æfingin er sérstaklega útfærð með það í huga að losa um gamlar venjur í undirmeðvitundinni og búa til nýja lífsýn án reykinga. Æskilegt er að hlusta á diskinn a.m.k. einu sinni á dag í 20 daga til að ná árangri.
Tónlistin er samin og flutt af Friðriki Karlssyni sem einnig stjórnaði upptökum.
Friðrik hefur verið búsettur í Englandi síðan 1996. Hann hefur verið virkur í tónlistarlífinu þar og spilað með fjölmörgum heimsþekktum listamönnum. Friðrik er mikill áhugamaður um mannrækt og hefur m.a. meistararéttindi í NLP, dáleiðslu og Time Line Therapy.
Höfundur:
Kári Eyþórsson (CMH, CHYP, PNLP, MPNLP) hefur margra ára reynslu sem ráðgjafi og á undanförnum árum hefur hann einbeitt sér meira að fjölskyldu- og einstaklingsráðgjöf sem byggir á kenningum Viginiu Satrin og Milton H Ericksson svo og NLP (Neuro-Lingustic Programming) sem hefur verið þýtt sem ,,undirmeðvitundarfræði". Sérstaða Kára hefu þó alltaf falist í notkun hans á persónuleikagreiningum sem flýta mjög fyrir úrlausnum.
Einnig fáanlegir diskar:
Betri svefn - áhrífarík slökunaræfing sem róar hugann
Hugurinn ber þig alla leið - áhrifarík slökunaræfing, skapaðu þér nýja framtíð með eigin hæfileikum.
Viltu ná tökum á þyngdinni - áhrifarík slökunaræfing fyrir alla sem vilja ná tökum á þyngdinni.
Upptökur fóru fram í júní 2003 í Rover of Light Studios, Claygate, Surrey í Englandi.
Sendingarkostnaður innifalinn í verði