Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Viltu ná tökum á þyngdinni - Slökunardiskur


1.990 kr.

Á disknum er að finna slökunaræfingar sem er blanda tónlistar og talmáls. Æfingin er sérstaklega útfærð fyrir þá og þær sem vilja losa um gamlar venjur í undirmeðvitundinni og ná tökum á þyngdinni.

Tónlistin er samin og flutt af Friðriki Karlssyni sem einnig stjórnaði upptökum.
Friðrik hefur verið búsettur í Englandi síðan 1996. Hann hefur verið virkur í tónlistarlífinu þar og spilað með fjölmörgum heimsþekktum listamönnum. Friðrik er mikill áhugamaður um mannrækt og hefur m.a. meistararéttindi í NLP, dáleiðslu og Time Line Therapy.

Höfundur:

Kári Eyþórsson (CMH, CHYP, PNLP, MPNLP) hefur margra ára reynslu sem ráðgjafi og á undanförnum árum hefur hann einbeitt sér meira að fjölskyldu- og einstaklingsráðgjöf sem byggir á kenningum Viginiu Satrin og Milton H Ericksson svo og NLP (Neuro-Lingustic Programming) sem hefur verið þýtt sem ,,undirmeðvitundarfræði". Sérstaða Kára hefu þó alltaf falist í notkun hans á persónuleikagreiningum sem flýta mjög fyrir úrlausnum.

Einnig fáanlegir diskar:

Betri svefn - áhrífarík slökunaræfing sem róar hugann
Líf án reykinga - áhrifarík slökunaræfing fyrir þá sem vilja líf án reykinga
Hugurinn ber þig alla leið - áhrifarík slökunaræfing, skapaðu þér nýja framtíð með eigin hæfileikum.

Upptökur fóru fram í júní 2003 í Rover of Light Studios, Claygate, Surrey í Englandi.

 

SENDINGARKOSTNAÐUR INNIFALINN Í VERÐI



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband