Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Tilboð Fjórir slökunardiskar saman


3.900 kr.

Fjórir frábærir slökunardiskar á tilboði einungis 3.900 kr saman.   Sendingarkostnaður innifalinn í verði

Betri svefn.

Á disknum er að finna slökunaræfingar sem er blanda tónlistar og talmáls. Æfingin kallar fram hugarró og djúpt slökunarástand sem stuðlar að betri hvíld og góðum svefni.

Hugurinn ber þig alla leið.

Á disknum eru slökunaræfingar sem hjálpa þér að nýta betur þá hæfileika sem þú veist að þú býrð yfir og uppgötva nýja. Þetta er frábær leið til að byggja upp ástríður sem þú notar til að ná tökum á lífinu, ná árangri og síðast en ekki síst... njóta þess að vera til.

Líf án reykinga.

Á disknum er að finna slökunaræfingu sem er blanda tónlistar og talmáls. Æfingin er sérstaklega útfærð með það í huga að losa um gamlar venjur í undirmeðvitundinni og búa til nýja lífsýn án reykinga. Æskilegt er að hlusta á diskinn a.m.k. einu sinni á dag í 20 daga til að ná árangri.

Viltu ná tökum á þyngdinni.

Á disknum er að finna slökunaræfingar sem er blanda tónlistar og talmáls. Æfingin er sérstaklega útfærð fyrir þá og þær sem vilja losa um gamlar venjur í undirmeðvitundinni og ná tökum á þyngdinni.

Tónlistin er samin og flutt af Friðriki Karlssyni sem einnig stjórnaði upptökum.
Friðrik hefur verið búsettur í Englandi síðan 1996. Hann hefur verið virkur í tónlistarlífinu þar og spilað með fjölmörgum heimsþekktum listamönnum. Friðrik er mikill áhugamaður um mannrækt og hefur m.a. meistararéttindi í NLP, dáleiðslu og Time Line Therapy.

Höfundur:

Kári Eyþórsson (CMH, CHYP, PNLP, MPNLP) hefur margra ára reynslu sem ráðgjafi og á undanförnum árum hefur hann einbeitt sér meira að fjölskyldu- og einstaklingsráðgjöf sem byggir á kenningum Viginiu Satrin og Milton H Ericksson svo og NLP (Neuro-Lingustic Programming) sem hefur verið þýtt sem ,,undirmeðvitundarfræði". Sérstaða Kára hefu þó alltaf falist í notkun hans á persónuleikagreiningum sem flýta mjög fyrir úrlausnum.



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband