Um leið og lítið barn fæðist verður til foreldri
Foreldrahlutverkið er eitt mikilvægasta hlutverk sem við tökumst á við um ævina. Að eignast barn, ala það upp og koma því á legg er í senn gríðarlega mikil ábyrgð og vinna, en jafnframt það sem veitir okkur hvað mesta gleði.
Í Foreldrahandbókinni tekur Þóra Sigurðardóttir saman hagnýtar upplýsingar, ráðleggingar og reynslusögur um allt frá bleyjuskiptum og brjóstagjöf til fæðingarþunglyndis og fyrsta ferðalagsins, en það getur reynst ógnvekjandi upplifun að ferðast með lítinn einstakling. Í bókinni má nálgast hafsjó af fróðleik og upplýsingar um hitt og annað sem nýbakaða foreldra fýsir að vita og gott er að hafa á einum stað.
Þóra hefur um árabil starfað við marga helstu fjölmiðla landsins, meðal annars við dagskrárgerð, blaðamennsku og pistlagerð, auk þess að sinna ritstörfum og þýðingum. Foreldrahandbókin er þriðja bók hennar. Í hana skrifar fjöldi sérfræðinga og geymir hún auk þess aragrúa reynslusagna og góðra ráða frá foreldrum.
*Sendingarkostnaður innifalinn í verði
Tilboðsverð 4.990 með sendingarkostnaði inniföldum
„Þessi bók er frábært framtak einstaklings með brennandi áhuga, sem hefur lagt nótt við dag að koma öllu þessu efni fyrir á einum stað, til að efla þekkingu samborgara sinna á líðan foreldra og ungbarna. Til hamingju!“
– Hildur Kristjánsdóttir, yfirljósmóðir og Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur
Brot úr bókinni
Það hefur komið mér á óvart að í öllum þeim bókum sem ég á í mínum bókahillum um barneignarferlið er hvergi fjallað um atferli barnsins fyrsta sólarhringinn. Það er því von mín að þessi lestur hjálpi ykkur að njóta fyrsta sólarhringsins sem best með barninu ykkar.“
– Helga Sigurðardóttir, ljósmóðir
„Þegar fólk er spurt um mestu hamingjustundir lífsins er sígilt svar: „Fæðing barna minna.“ En það er bara byrjunin. Síðan er að fylgjast með þeim taka út vöxt og þroska skref fyrir skref og verða að einstökum manneskjum. Það kostar blóð, svita og tár en í kaupbæti uppskera foreldrar bros, stolt, gleði, sæluhroll, hlátursköst og hitastraum í hjartanu.“
– Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir