Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Lofuð


2.590 kr.

Framhald "Borða, biðja, elska"!

Ný metsölubók eftir metsöluhöfundinn þekkta, Elizabeth Gilbert! Í lok Borða, biðja, elska hafði Liz orðið ástfangin af hinum brasilíska Felipe. Nú ákveða þau að setjast að í Bandaríkjunum og hefja nýtt líf saman. Liz og Felipe lofa hvort öðru tryggð, en eru sammála um að þau muni aldrei, ekki undir neinum kringumstæðum, giftast. (Þau höfðu bæði nýlega gengið í gegnum erfiðan skilnað.) En örlögin grípa í taumana þegar yfirvöld í Bandaríkjunum meina Felipe inngöngu. Parið verður að endurskoða afstöðu sína og viðhorf til hjónabandsins ef Felipe á að fá að koma inn í landið.

 Elizabeth Gilbert er einstaklega hnyttinn höfundur sem leitast hér við að varpa ljósi á spurningar sem varða eindrægni, tryggð, fjölskylduhefðir, væntingar samfélagsins og skyldur hjónabandsins. Þegar allt kemur til alls er bókin ekki síst óður til ástarinnar með öllum þeim kostum og göllum sem henni fylgja.

 Lofuð kom út í janúar síðast liðnum og fór beint á metsölulista, enda er bókin frábærlega skemmtileg.

    Líkt og Borða, biðja, elska er framhaldsbókin, Lofuð ómótstæðilega einlæg … Ég stóð sjálfa mig að því að lesa Lofuð af mikilli áfergju, stóra hluta í einu, langt fram eftir nóttu. Hvenær sem ég lagði bókina frá mér, hnuplaði mamma eða systir mín henni.

    -        Sunday Times


    Fordómalaus íhugun á því hvaða þýðingu hjónabandið hefur í raun.

    -        Woman &Home


    Gilbert kafar djúpt í sögu og menningarlega merkingu hjónabandsins, sem og sitt eigið samband.

    -        Financial Times


    Bókin veitir innsýn … Hún talar máli margra sem draga í efa alsælu hjúskaparfjötranna, eða, alltént, þeirra sem vilja öðlast skilning á því hvernig hefðin hefur varðveist. Í blíðu eða stríðu.

    -        Vogue

 

SENDINGARKOSTNAÐUR INNIFALINN Í VERÐI



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband