Bókin SAGA UM TILFINNINGAR er barnabók með spurningum og leiðbeiningum fyrir þann sem les. Spurningarnar eru hannaðar til þess að örva börn til að segja frá tilfinningum sínum og því sem á þeim hvílir og geta hjálpað við að opna samskiptin við barnið/börnin.
Bókin fæst í Pennanum og á www.velgengni.is
Ummæli um bókina:
“Þessi bók er frábær - hún sýnir á einfaldan en skemmtilegan hátt hvernig litlir og einfaldir hlutir geta skipt stóru og veigamiklu máli í samskiptum við börn. .......með því að hlusta eftir því sem þau raunverulega eru að segja sýnum við þeim virðingu og styrkjum þeirra sjálfsvirðingu. Þessi bók á jafn mikið erindi til fullorðinna sem barna, mér leið vel þegar ég las hana og hún fékk mig til að endurmeta og hugsa uppá nýtt. Ég mæli með þessari bók við alla foreldra, ömmur, afa, systkyni, frænkur og frændur skemmtileg og gefandi bók”.
Sighvatur Ívarsson
Félag lesblindra
“Barnabókin Saga um tilfinningar eftir Valgerði Ólafsdóttir hefur komið mér að góðum notum við smábarnakennslu í leiklist. Ég hef ekki rekist á gagnlegri bók þegar kemur að því að kenna ungum börnum um tilfinningar þar sem markmiðið er að örva tilfinningaþroska barnanna. Öll leiklistkennsla í grunnskólum miðar meðal annars að því að hjálpa börnum að tjá og skilja tilfinningar sínar og er því mikill fengur af þessari ljúfu barnabók”.
Inga Bjarnason
leikstjóri og leiklistakennari
Sendingarkostnaður innifalinn í verði