Skemmtilegur DVD diskur fyrir börn
Hafdís og Klemmi eru hugmyndaríkir og framtakssamir krakkar sem eru sífellt að lenda í ævintýrum.
Þau halda kökubasar, afmælisveislu, safna servéttum og lenda í allskonar vandræðum.
Áður en þau halda í sunnudagaskólann horfa þau á brúðuþáttinn “Nebbnilega” sem tekur óvænta stefnu.
Hröð og spennandi atburðarrás, gaman og gleði í bland við uppbyggilegt veganesti.
Á disknum eru fjórir vandaðir þættir sem miðla sígildum boðskap kristinnar trúar á nýjan og ferskan hátt. 117 mínútna langur diskur.
Tuttugu sunnudagaskólalög og barnasálmar og fjórar dæmisögur Jesú sagðar á skemmtilegan máta og kallast á við fjörleg ævintýri Hafdísar og Klemma.
Sendingarkostnaður innifalinn í verði.