Dagatalsbók 2011
Dagatalsbókin er byggð þannig upp að í byrjun hverrar viku og mánaðar eru hugleiðingar eftir konur. Myrra Leifsdóttir hannar bókina, teiknar myndir við hugleiðingarnar og velur ljósmyndir við sumar þeirra.
Samanlagt leggja 80 konur hönd á plóginn við gerð hverrar bókar. Eina skilyrðið til að eiga orðið í bókinni er að skrifa frá eigin brjósti. Viðfangsefnin í gegnum árin hafa verið eins ólík og þau eru mörg, má þar til dæmis nefna jafnrétti, ástina í öllum sínum myndum, umhverfisvernd, listina, áttavita, súkkulaði og hælaháa skó!
Fyrir fjórum árum fæddist hugmynd. Afraksturinn var nýstárleg, listræn og handhæg dagatalsbók sem Bókaútgáfan SALKA hefur nú gefið út síðastliðin fjögur ár við frábærar móttökur.
Hver dagatalsbók er barn síns árs, barn sem 80 konur um allt Ísland eiga saman. Vegna 10 ára afmælis SÖLKU var ákveðið að halda sýningu á nokkrum af þeim myndum sem hafa prýtt dagatalsbækurnar síðustu fjögur árin, líta yfir farinn veg og fagna Konum sem eiga orðið allan ársins hring.
SENDINGARGJALD INNIFALIÐ Í VERÐI