Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Máttur viljans


3.990 kr.

Máttur viljans
Guðni Gunnarsson
Máttur viljans er bók sem getur virkjað kraftinn sem býr innra með þér.

Allt sem við veitum athygli vex og dafnar.
Máttur viljans er bók sem gerir þér kleift að losna undan álögum. Ekki þess háttar álögum sem við lesum um í ævintýrum, heldur sjálfsálögum – öllu því neikvæða sem við leggjum á okkur sjálfviljug og þar með á allan heiminn.

Þetta er bók sem fjallar um að lifa annað hvort í sjálfstýringu, þar sem skortur og vansæld ráða ríkjum, eða í eigin mætti og kærleiksríkri ábyrgð.

Öll erum við ljós og ótakmörkuð orka. Með því að styrkja mátt viljans getum við virkjað kraftinn sem býr innra með okkur og bókin spyr þessarar einföldu en mikilvægu spurningar: „Af hverju áttu ekki í einlægu ástarsambandi við þig?“

Máttur viljans er skrifuð með það fyrir augum að veita sem flestum aðgang að þessari umræðu og setur fram lausnir á einfaldan og aðgengilegan hátt.


    "Þessi bók á eftir að hrista ærlega upp í þeim sem hafa kjark til að lesa hana og meðtaka boðskap hennar."
    - Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur


    "Þessi bók breytir lífi þínu þegar þú nýtir þér innihald hennar. Máttur viljans er að mínu mati frábær vegvísir fyrir þá sem þora að taka ALLA ábyrgð á eigin lífi og finna frelsið. Og í frelsinu byrjar ferðalagið í átt til ljóssins hið innra með þér.  TAKK Guðni¨*•.¸¸☼"
    - Sólveig Eiríksdóttir, heilsufrömuður.

Sendingarkostnaður 400 krónur er innifalið í verði bókarinnar.



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband