Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Í greiðsluaðlögun - námskeið


6.900 kr.

Velgengni býður  nú nýtt námskeið sem hentar einstaklingum/hjónum sem hafa eða eru að hugsa um að sækja um greiðsluaðlögun hjá UMS.

Á námskeiðinu er meðal annars farið í gegnum:

          >   hvað felst í greiðsluaðlögun
 
         >     hvað þarf að gera á meðan viðkomandi er í greiðsluskjóli.

         >    hvað tekur við ef  greiðsluaðlögun er samþykkt.
 
         >    hvað tekur við ef greiðsluaðlögun fæst ekki samþykkt.
 
         >   greinargerð sem allir þurfa að skila inn og einnig er hægt að óska eftir aðstoð samhliða námskeiðinu  við að klára hana.
 
         >    ýmsar aðrar úrlausnir og hvernig hægt er að byrja sem fyrst í uppbyggingu.

         >    fyrirspurnir og umræða

Lögð er áhersla á að fara í gegnum allt ferlið á skýran og einfaldan hátt til að fólk sjái heildarmynd af sínu máli og geti verið öruggara um hvert skuli  að stefna.

Til að greiðsluaðlögunarferlið heppnist sem best er nauðsynlegt að vita hver er réttur hvers og eins og hvaða skyldur leggjast á.  Einnig til að geta metið hvort það sé einhver önnur leið sem kunni aðhenta betur.

Hvert námskeið 3 tímar.

Verð á námskeiðinu er 6.900 krónur og geta hjón komið saman á sérstöku afsláttar verði 8.900 krónur.

Einnig er hægt að greiða með millifærslu inná reikning 0701-26-000399 kt 440399-3719.

Ef þú vilt frekari upplýsingar sendu þá póst á min@velgengni.is



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband