Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Velgengni - leiðin til árangurs - námskeið


18.900 kr.

Námskeiðið er fyrir einstaklinga sem vilja ná tökum á fjármálum sínum og greiða úr fjárhagsvanda. Námskeiðið hentar vel fyrir einstaklinga sem hafa misst tök á fjármálum sínum vegna utanaðkomandi ástæðna, s.s  atvinnumissis, stökkbreytingu skulda, skilnaðar, veikinda, óreglu eða offjárfestingar.

Á námskeiðinu er farið í hvernig best er að horfast í augu við núverandi ástand. Hvaða tilfinningar og hegðun eru ríkjandi á hverju stigi.  Hvernig umhverfi og hegðun breytist og hvað getur verið til þess að hindra framþróun og að árangur náist. 

Kenndar eru leiðir  til að:


•    Styrkja sjálfsmynd og sjálfsöryggi
•    Læra að lifa með erfiðri fortíð
•    Takast á við ótta, reiði og erfiðar tilfinningar
•    Byggja upp samskipti og hvernig góð samskipti hjálpa við að koma með lausnir á málum sem geta virst óleysanleg
•    Byggja upp eldmóð og frumkvæði
•    Öðlast færni í að finna lausnir og yfirstíga ótta tengdan þeim

 

Kynnt eru þau úrræði sem eru í boði fyrir fólk í greiðsluvanda og farið í kosti og galla. Einstaklingurinn á því að vera betur í stakk búinn til að meta hvaða úrræði hentar honum og einnig að geta nýtt sér þau betur til að ná sem bestum árangri. Sérstaklega er farið í greiðsluaðlögunarferli, nauðasamningarferli og önnur tengd úrræði.

Eftir námskeiðið á einstaklingurinn að vera kominn með aðgerðarplan og byrjaður að vinna í því að koma málum sínum í réttan farveg. Kominn með færni og þekkingu til að takast á við hvert þrep og vera meðvitaður um þær tilfinningar sem geta verið ríkjandi á hverjum tíma og því færari að takast á við þær og ná árangri.

Gert er ráð fyrir að einstaklingar geti fengið stuðning í framhaldi af námskeiðinu. Mismunandi er hvað hentar hverjum aðila fyrir sig, en flestir eru að ná góðum árangri með handleiðslu og stuðningi í 2 – 3 einkatímum samhliða og eftir námskeiðið.

Að upplifa nýtt upphaf, kveikja aftur lífsneistann og sjá von breytast í vissu eru tilfinningar sem margir upplifa á námskeiðinu.

Námskeiðið er 4 vikur – einu sinni í viku 2,5 tíma í senn. Verð á námskeiðinu er 18.900







Meðal efnis sem farið er í gegnum er:

1.    Sjálfskönnun
a. Núverandi ástand
b. Óska ástand
    Hver telur þú að sé helsta ástæða á núverandi stöðu í lífi þínu?

2.    Sannfæring
a.    Hvernig virkar sannfæring
b.    Hvernig vinnur hún á móti okkur    
c.     Hvernig vinnur hún með okkur

3.    Venjur
a.    Hvernig verða venjur til
b.    Næring og fæði
c.    Heilsa og hreyfing

Hvað gerir það að verkum að vanabundin hegðun verður okkur andsnúin

4.    Hugafar - tilfinningar   
a.    Leiðir til að breyta hugafari
b.    Huglæg kerfi sem hafa áhrif á gjörðir okkar
c.    Tilfinningar sem eru ríkjandi á hverjum tíma og hvernig við vinnum með þær

5.    Inn og útstreymi peninga
a.    Skuldbindingar
b.    Neysla
c.    Sparnaður

6.    Núverandi staða – fjárhagslegur raunveruleiki
a.    Greiðslugeta
b.    Skuldavandi
c.    Lausnir og leiðir

7.    Það er líf eftir niðurbrot eða áföll.
a.    Leiðir til að lifa með erfiðri fortíð

8.    Áhrif niðurbrots á sjálfsmyndir
a.    Leiðir til að byggja sjálfsmynd upp að nýju.

9.    Nýtt upphaf.
Handleiðsla, stuðningur, verkfæri  - til að láta draumana rætast.

Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst á min@velgengni.is



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband