Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Fiskur fyrir lífið


2.690 kr.

Milljónir manna hafa notfært sér hugmyndafræði bókarinnar FISKUR! til að auka vinnugleði og bæta starfsárangur.

Þessi áhrifaríka dæmisaga bendir á hvernig okkur getur liðið betur heima og með fjölskyldunni með því að ræða málin skipulega og af einlægni. Ef við tökum sameiginlegar ákvarðanir og ræðum vanda sem upp kemur heima, í skóla og á vinnustað dregur úr streitu og samskiptin verða ánægjulegri. Milljónir manna hafa notfært sér hugmyndafræði bókarinnar FISKUR! til að auka vinnugleði og bæta starfsárangur. FISKUR! fyrir lífið beinir sjónum að einkalífinu.

Lonnie og Mary Jane kynntust á Pike Place fiskmarkaðnum þegar Lonnie hjálpaði Mary Jane að glæða áhuga og auka starfsgleði á vinnustaðnum sem hún stjórnaði. Nú eru þau búin að vera gift í fjögur ár, rómantíkin er farin að dofna og Mary Jane er oft þreytt og vonsvikin. Þau gleyma stundum að ræða málin og tala um hvernig þeim líður eða hvernig þau vilja hafa hlutina. Þegar þau taka heimilislífið í gegn með hugmyndir FISKS! að leiðarljósi breytist allt. Stálpuð börn úr fyrra sambandi Mary Jane eru virkir þátttakendur og fyrr en varir einkennir lífsgleði heimilishaldið.

Þeir sem tileinka sér lífsspeki FISKS!
… leika sér
… gera öðrum daginn eftirminnilegan
… eru til staðar (gefa öðrum gaum)
… velja sér viðhorf

Bækurnar um FISK! hafa selst í milljónum eintaka víða um heim og setið á metsölulistum. Þúsundir virtra fyrirtækja nýta sér þessa hugmyndafræði sem hefur aukið bjartsýni, hugrekki og árangur heima og á vinnustað.

Sigríður Á. Ásgrímsdóttir þýddi.

 

SENDINGARKOSTNAÐUR INNIFALINN Í VERÐI



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband