Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hollt nesti fyrir alla!


2.990 kr.

Það kannast örugglega margir við að finna „ akkúrat ekkert“ bitastætt í ísskápnum þegar á að taka til nesti í skóla eða vinnu. Þegar hungrið sverfur síðan að er auðveldast að skjótast út í sjoppu og stinga upp í sig rándýrum og mishollum skyndibitum.

Í bókinni Hollt nesti heiman að er að finna um það bil 70 uppskriftir að nesti og matarpökkum sem eru hver annarri ljúffengari og hollari. Að auki eru tilögur um girnilegt nesti fyrir lautarferðir allan ársins hring.

Þrír kvenskörungar standa á bak við bókina, þær Sigurveig Káradóttir, eigandi Matarkistunnar, Sigurrós Pálsdóttir, yfirmaður veitingadeildar hjá Manni lifandi og Grænum kosti og Margrét Gylfadóttir, matgæðingur og mannfræðingur.

Uppskriftirnar eru einfaldar en að sama skapi nýstárlegar og minna okkur á að oftast nær leynist meira í ísskápnum en við höldum.

Bókin er prýdd ljósmyndum eftir Gunnar Sverrisson, hún er 120 bls. í kiljubroti og prentuð hjá GuðjóniÓ.

SENDINGARKOSTNAÐUR INNIFALINN Í VERÐI



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband