Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hollráð Hugos - Hlustum á börnin okkar


2.990 kr.

Eftir Hugo Þórisson sálfræðing – þörf og áhugaverð lesning sem hjálpar foreldrum
að gera samskipti við börn sín bæði uppbyggilegri og skemmtilegri.


„Komdu, ég þarf að hlusta á þig.“ Þessi áhrifaríka en einfalda setning er lýsandi fyrir Bókina Hollráð Hugos – Hlustum á börnin okkar sem kemur út hjá Bókaútgáfunni Sölku um miðjan október. Enda finnst höfundi að foreldrar mættu nota það óspart í gegnum súrt og sætt.
Sálfræðingurinn Hugo Þórisson er mörgum að góðu kunnur. Hann hefur starfað að bættum samskiptum barna og foreldra í yfir 30 ár og hjálpað ótal fjölskyldum. Í bókinni deilir hann með okkur reynslu sinni og útskýrir á einlægan og líflegan hátt hugmyndir sínar um uppeldi. Hollráð Hugos eru þörf og áhugaverð lesning sem hjálpar foreldrum að gera samskipti við börn sín bæði uppbyggilegri og skemmtilegri.

Teikningar gerði Karl Jóhann Jónsson.



    „Ekkert getur verið okkur mikilvægara en að styðja börnin okkar til þroska og færni til að
    verða góðir og nýtir þjóðfélagsþegnar. Lífshamingja þeirra veltur á því. Hér er bók sem
    vísar okkur veginn til þess uppeldis sem kemur þeim best og þau munu í framtíð meta
    sem dýrmætt veganesti.“

    Vigdís Finnbogadóttir



           

    „Gott uppeldi er að rata hinn gullna meðalveg, hvorki of né van. Það getur verið flókið.
    Hugo tekst vel til við að hjálpa lesandanum að rata meðalveginn á skýran og einfaldan hátt.“

    Haraldur Freyr Gíslason, formaður félags leikskólakennara

SENDINGARKOSTNAÐUR INNIFALINN Í VERÐINU



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband