Í þessari fallegu bók Heilsudrykkir er fjöldi uppskrifta að einföldum, hollum og umfram allt ljúffengum drykkjum. Það er auðvelt að blanda sér næringarríkan drykk og taka með út í amstur dagsins eða bera á borð og njóta í rólegheitum. Láttu þér líða vel strax í dag með þessum freistandi og gómsætu drykkjum.
Höfundurinn, Auður Ingibjörg Konráðsdóttir, hefur getið sér gott orð sem heilsukokkur og hefur meðal annars haldið úti vinsælli vefsíðu, www.heilsukokkur.is
Hún er lærður matreiðslumaður og bakari og hefur áratuga reynslu að baki í faginu, sérstaklega við matreiðslu heilsurétta. Undanfarin ár hefur hún haldið námskeið og fyrirlestra um matargerð, bakstur, hollustu og heilbrigðan lífsstíl.
,,Heilsukokkurinn Auður smitaði marga af áhuga á að blanda sér holla og ferska heilsudrykki þegar hún var reglulegur gestur minn á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Fátt er betra að morgni dags en fallegir, ferskir heilsudrykkir. Og hvílík hollusta í einu glasi frá Heilsukokkinum !
Þessi bók er eins og vítamínsprauta og stútfull af hugmyndum".
Sirrý - Rás 2
SENDINGARKOSTNAÐUR INNIFALINN Í VERÐI