UPPSELD
Liggurðu andvaka á nóttunni altekin af áhyggjum af börnunum, makanum eða fjölskyldunni?
Veltirðu sí og æ fyrir þér hvernig þú gætir staðið þig betur í skólanum eða vinnunni?
Konum hættir til að taka hlutina of nærri sér, burðast með áhyggjur og eyða óþarfa orku í að velta fyrir sér vandamálum fram og til baka. Þetta kallar Susan Nolen-Hoeksema ofhugsun sem hún telur skaðlega andlegri og líkamlegri heilsu kvenna. Í bókinni bendir hún á leiðir til að losna undan oki ofhugsunar. Hún tilfærir ýmis dæmi máli sínu til stuðnings og eru margar sögurnar lærdómsríkar og kunnuglegar úr hversdagslífinu.
Höfundurinn er prófessor í sálarfræði við háskólann í Michigan. Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar frá alþjóðlegum sjóðum og stofnunum fyrir rannsóknir á ofhugsun kvenna. Bókin hefur hlotið gríðarlega athygli og vinsældir víða um heim.
Sigurður Hróarsson þýddi.
Fullt verð 3.490
Sendingarkostnaður innifalinn í verði