Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Rauðhettuklúbburinn


0 kr.

 UPPSELD

Margar konur líta svo á að lífinu sé að verða lokið eftir fimmtugt. Sue Ellen Cooper er annarrar skoðunar. Hún ákvað að fimmtugasti afmælisdagurinn væri sérstakt fagnaðarefni og keypti sér rauðan hatt í tilefni dagsins. Það leið ekki á löngu þar til allar fimmtugu vinkonurnar voru búnar að eignast rautt pottlok! Fljótlega varð til fjörugur hópur sem hafnaði hefðbundnum klæðaburði og litasamsetningu og fór á kaffihús í fjólubláum fötum, með rauða hatta eða húfur. Þær skemmtu sér konunglega og kölluðu sig Rauðhettuklúbbinn. Í dag eru Rauðhettur í Bandaríkjunum og Kanada að nálgast hálfa milljón og klúbburinn er byrjaður að skjóta rótum í Evrópu, Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Rauðhettuklúbburinn er hvorki formlegt félag né saumaklúbbur, heldur net kvenna sem vilja kynnast og eru til í að bregða á leik eftir að hafa staðið undir kröfum og ábyrgð í áraraðir. Bókin um Rauðhettuklúbbinn er full af hugmyndum um það hvernig þú getur losað þig undan því oki að taka sjálfa þig of hátíðlega. Það gerirðu í félagsskap annarra kvenna sem vilja njóta lífsins, hafa gaman af óvæntum uppátækjum – og vita að um fimmtugt er lífið rétt að byrja!
 
Viljirðu vita meira um Rauðhettuklúbbinn, skaltu finna rauða hattinn á http://redhatsociety.com/

Þýðandi er Súsanna Svavarsdóttir, rithöfundur og Rauðhetta.
 




Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband