UPPSELD
Teygjur er glæsileg og gagnleg bók eftir Suzanne Martin sem er þekktur líkamsræktarþjálfari í Bretlandi. Í bókinni er að finna ráðleggingar um hvernig hægt er að teygja á líkamanum til að bæta líkamsstöðuna, minnka bólgur í vöðvum, losa um stress, losna við harðsperrur og láta sér líða betur á allan hátt. Teygjur eru í rauninni taldar allra meina bót. Góðar leiðbeiningar og fallegar skýringarmyndir gera auðvelt og skemmtilegt að fylgja teygjunum og fljótlega kemur árangurinn í ljós.
Þessi gríðarvinsæla bók seldist upp á nokkrum mánuðum en er nú komin aftur svo hægt er að hefjast handa við að koma sér í betra form fyrir sumarleyfið.