UPPSELD !!!
Ætigarðurinn – handbók grasnytjungsins eftir Hildi Hákonardóttur hitti beint í mark, enda er um þessar mundir mikill áhugi fyrir ræktun og hollum lífsháttum. Hildur býr að Straumum í Ölfusi og sinnir gróðri allan ársins hring. Hér sýnir hún fram á hve ánægjulegt er að lifa í í takt við náttúruna og njóta þess sem hún hefur uppá að bjóða. Hún bendir á einfaldar leiðir til að rækta matjurtir og notfæra sér blóm og jurtir sem vaxa villtar. Í bókinni eru líka girnilegar uppskriftir og áhugaverðar frásagnir um lækningamátt jurta og hugmyndafræði ræktunar.
Ætigarðurinn – himneskt kver sem er hafsjór af fróðleik og innblæstri, svo skemmtilega og lifandi skrifað að þegar ég tók mér bókina í hönd þá fór ég þangað ... Sólveig Eiríksdóttir
Þetta er yndisleg bók. Hún bæði jarðtengir mann og lyftir á andlegt plan. Jafnvel þó maður hafi ekki nokkurn áhuga á garðyrkju eða hollustu er þetta dásamleg lesning. Hún hjálpar manni að vera manneskja. Unnur Jökulsdóttir