Í þessari bók er fjallað af miklum skilningi um það erfiða verkefni að ala upp börn. Góð reynsla er komin á aðferðina sem vísar á auðfarna leið til að aga börn á aldrinum 2ja-12 ára án þess að skammast, þræta eða beita valdi. Einnig er sýnt fram á að þögnin getur verið áhrifaríkari en orð.
Hér er að finna ótal góð ráð, til dæmis um hvernig má fá börn til að HÆTTA þegar þau ganga of langt (rífast, suða, fá reiðiköst, metast við systkinin o.s.frv.); hvernig hægt er að fá börn til að BYRJA á því sem þau eiga að gera (taka til í herberginu sínu, koma sér í rúmið, læra heima o.s.frv.); Hvernig má sleppa við tala-sannfæra-þrátta-rífast-slá ferlið; hvernig unnt er að bregðast við óþekkt á almannafæri; hvernig kennarar geta haldið uppi réttlátum aga í bekk og ekki síst hvernig auka má sjálfstraust barna.
Thomas W. Phelan er þekktur sérfræðingur og fyrirlesari í heimalandi sínu. Hann hefur sérþekkingu á agamálum og athyglisbresti hjá börnum. Bækur hans hafa selst í milljónum eintaka um allan heim.
Þýðing: Bryndís Víglundsdóttir
Sendingarkostnaður innifalinn í verði