Eftir áralangar rannsóknir hefur japanski vísindamaðurinn Masaru Emoto fundið út að ekki einungis náttúruöflin hafa áhrif á eiginleika vatnsins heldur líka allt það sem mannfólkið segir og gerir.
Emoto byggir tilraunir sínar á myndum sem hann tekur af kristöllum í frosnu vatni við ólíkar aðstæður. Kristallarnir taka sláandi breytingum og styðja þá skoðun að allt líf byggist á mismunandi tíðni bylgjuhreyfinga. Þar sem sjötíu prósent mannslíkamans er vatn ályktar Emoto að vatn jarðarinnar endurspegli líf okkar. Með því að rannsaka vatnskristalla á þennan nýstárlega hátt getum við lært heilmikið um okkur sjálf og alheiminn.
Kenningar Emotos hafa vakið gífurlega athygli og hreyfa sannarlega við þeim sem bera umhverfismál og andlega velferð fyrir brjósti.
Loksins er þessi metsölubók Emotos fáanleg á íslensku, hún veitir okkur eyjabúum dýrmætar upplýsingar um vatnið sem er okkur svo mikilvægt og talið meðal þess ferskasta í heimi.
"Ég bið bara um að þú hlustir á og takir til þín það sem vatnið segir okkur, mannkyni öllu og þér." -Masaru Emoto
Sendingarkostnaður innifalinn í verði