Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

1001 leið til að slaka á


3.490 kr.

Tegund: Kilja

Höfundur: Susannah Marriott

Þýtt og staðfært: Aðalheiður Ploder

Stjórnast líðan þín af streitu og álagi? Hér er 1001 slökunarheilræði fyrir fólk sem hefur engan tíma til að slaka á! Í bókinni eru stuttir, hvetjandi og uppbyggilegir kaflar sem gott er að grípa til. Bók sem lætur þér líða vel... þú átt það skilið.

Meðal annars er fjallað um hvernig best er að takast á við streitu á vinnustað og heima fyrir, hvernig mæta má auknu álagi á meðgöngu og eftir fæðingu, í samskiptum við ástviini, í jólaannríkinu og ótalmargt fleira.

Lögð er áhersla á lausnir þar sem ekki þarf að eyða miklum fjármunum í lyf eða dýrar meðferðir. Lærðu að sigla um lífsins ólgusjó í jafnvægi - og fleygðu streitunni fyrir borð!

 

 

Ráð 319: Slökktu á símanum

Samkvæmt könnun sem gerð var í Bretlandi árið 2006 telur einn af hverjum sex farsímanotendum símann mikinn streituvald í lífi sínu. Þeir sem slökktu á símanum þegar þeir höfðu ekki tíma til að svara höfðu greinilega færri streitueinkenni og lægri blóðþrýsting. Taktu áhættu og slökktu á símanum og finndu hve það hefur góð áhrif á fjölskyldulífið.

Fullt verð 3,990

Tilboðs verð 3,490

Sendingarkostnaður innifalinn í verði

 



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband