Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína.
Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Ef þú ert að glíma við þunglyndi, kvíða, svefnleysi, lélegt sjálfstraust eða einhverja erfiðleika, þá getur þessi diskur hjálpað þér að öðlast hugarró, vellíðan og innri styrk. Slökun og sjálfstyrking er mikilvægur þáttur í að hlúa að sjálfum sér í daglegu lífi, jafnvel þó ekkert sé að angra þig, því að slökun er lykill að vellíðan og gefur þér styrk til að takast á við lífið. Kristín Edda Ragnarsdóttir hjúkrunarfræðingur starfar á geðsviði Landspítalans og hefur kennt slökun með góðum árangri. Hún er lærð sem heilari, blómadropaþerapisti og jógakennari. Einnig hefur hún lagt stund á djúpslökun og ýmsa hugleiðslutækni auk þess að nema höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð.
* Verð: 3.290 kr. Tilboðsverð 2.600 kr.
Sendingargjald er innifalið í verði