Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Japanskar konur hraustar og grannar


2.190 kr.

Tegund: Kilja

Höfundar: Naomi Moriyama og William Doyle

Þýðandi: Þóra Sigurðardóttir

Fólkið í Japan lifir lengur en annars staðar. Konurnar eru grennri en í öðrum löndum og ótrúlega unglegar. Það er þó ekki bara japönskum erfðaeiginleikum að þakka heldur ekki síður mataræðinu, það er til dæmis sannað að Vesturlandabúar sem tileinka sér japanskt mataræði verða hraustari og aukakílóin hverfa eins og dögg fyrir sólu.

Naomi Moriyama ólst upp í Tókýó en flutti til Bandaríkjanna þar sem hún fór í háskólanám og bætti á sig 12 kílóum! Nokkrum árum síðar fór hún með amerískum eiginmanni sínum til Tókýó og dvaldi þar í mánuð. Fyrr en varði hrundu kílóin af þeim báðum án þess að þau gerðu nokkuð til þess. Hér segir

Naomi frá matarmenningu þjóðar sinnar og hvernig þau hjónin aðlöguðu japanskt mataræði vestrænum lifnaðarháttum sínum. Bókin er auk þess sneisafull af girnilegum, meinhollum og umfram allt einföldum uppskriftum sem sannarlega hafa áhrif á líkamsvöxtin.

Þýðandinn, Þóra Sigurðardóttir, er einnig höfundur bókanna; Djöflatertan og Ef þú bara vissir í samstarfi við Mörtu Maríu Jónsdóttur. Hún býr á Bahamas með eiginmanni sínum Völundi Snæ Völundarsyni sem rekur þar tvo veitingastaði.

Japanskt mataræði er ekki eins ólíkt okkar og við höldum, enda byggist það að mikið á fersku sjávarfangi.


    * Verð: 2.990 kr. TIlboðsverð 2.190 kr.

Sendingarkostnaður innifalinn í verði



Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband