Bragð í baráttunni – matur sem vinnur gegn krabbameini er ný bók sem hefur vakið athygli víða um heim, enda er hér um tímamótarit að ræða. Bókin heitir á frummálinu Cooking with foods that fight cancer . Bókin er gefin út af Vöku-Helgafelli að frumkvæði Krabbameinsfélagsins Framfarar
Bókin, sem er aðgengileg, litrík og listilega hönnuð, hefur að geyma ítarlega umfjöllun um ýmis hráefni í matargerð sem talið er að geti unnið gegn myndun krabbameina. Þar eru einnig að finna yfir 160 gómsætar uppskriftir sem auðvelt er að fara eftir.
Með hjálp þessarar bókar getur fólk breytt matarræði sínu og lífsstíl á áhrifaríkan hátt, en slíkt er af mörgum talið afar mikilvægur þáttur í baráttunni gegn krabbameini.
Höfundar bókarinnar eru Richard Béliveau, prófessor í lífefnafræði við Quebec-háskóla í Montreal í Kanada og leiðandi aðili í krabbameinsransóknum þar í landi, og Denis Gingras, sérfræðngur í sameindalíffræði við sama skóla.
„Rannsóknir áætla að hægt sé að koma í veg fyrir um þriðjung krabbameinstilvika með réttu mataræði, hreyfingu og með því að halda sér nærri kjörþyngdarmörkum,” segir Oddur Benediktsson, formaður Krabbameinsfélagsins Framfarar í formála bókarinnar.
Fjölmargir læknar hafa mælt með bókinni og nýtur boðskapur hennar vaxandi virðingar og viðurkenningar meðal heilbirgðisstétta erlendis.
Auk Krabbameinsfélagsins Framfarar styrkti heilbrigðisráðuneytið, undir stjórn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, útgáfuna. Aukin heldur styrkti Helga Hjörvar verkefnið til minningar um Úlf Hjörvar. Aðrir styrktaraðilar eru Krabbameinsfélag Íslands, Krabbameinsfélag Reykjavíkur og Ljósið. Enn fremur mun Krabbameinsfélagið Kraftur (kraftur.org) dreifa verkinu til krabbameinsfélaga og í heilbrigðisgeiranum og kynna það fjölmiðlum. Þýðandi er Þórunn Hjartardóttir.
Höfundar: Denis Gingras, Richard Béliveau
Bókin er núna í 5. sæti á metsölulista .