Leiðin til lífshamingju eftir Dalai Lama og Howard C. Cutler hefur nú verið endurútgefin í kilju, enda má ætla að þörf fólks fyrir innri frið sé með meira móti nú um stundir.
Í þessari einstöku bók greinir Dalai Lama, einn fremsti andlegi leiðtogi heims, frá því hvernig hann öðlaðist sálarró og sigrast á þunglyndi, kvíða, reiði, afbrýði eða bara hversdagslegri geðvonsku. Hann ræðir um mannleg samskipti, heilbrigði, fjölskyldu og vinnu og sýnir fram á að innri friður er öflugasta vopnið í baráttunni við dagleg vandamál. Bókin gefur glögga og raunhæfa mynd af því hvernig haga má lífinu sér og öðrum til farsældar og öðlast varanlega hamingju.
„Hvort sem við erum trúuð eða trúlaus og hverrar trúar sem við erum, leitum við öll að betra lífi. Sjálft lífsaflið knýr okkur áfram í átt til hamingju,“ segir Dalai Lama.
Leiðin til lífshamingju er afar aðgengilegur leiðarvísir fyrir vestræna lesendur. Bókin sameinar andlega hefð Dalai Lama og vestræn sjónarmið Howards C. Cutler geðlæknis. Saman leiða þeir í ljós hvernig hægt er að öðlast andlegt jafnvægi og fullkomið frelsi hugans.
Dalai Lama er andlegur leiðtogi tíbesku þjóðarinnar. Hann hefur dvalið í útlegð í Dharamsala á Indlandi síðan 1959 en þá gerðu Kínverjar innrás í Tíbet. Hann er þekktur um allan heim fyrir þrotlausa baráttu í þágu friðar og mannréttinda og hlaut friðarverðlaun Nóbels 1989.
Dr. Howard C. Cutler rekur geðlækningastofu í Phoenix, Arizona. Hann hitti Dalai Lama í fyrsta sinn 1982. Hann var þá á ferð um Indland og hafði fengið rannsóknarstyrk til að kynna sér tíbeska læknisfræði.
Jóhanna Þráinsdóttir þýddi.
„Einn allra merkasti hugsuður og hugsjónamaður samtímans.“
Njörður P. Njarðvík / Morgunblaðið
Höfundar: Dalai Lama, Howard C. Cutler